fbpx

Þann 8. september nk. frá 09:00-12:15 á Hótel Selfossi verður haldin ráðstefna um nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu. 

Brýnt er að auka matvælaframleiðslu í heiminum verulega á næstu áratugum vegna sífellt vaxandi íbúafjölda heimsins. Í þessu felast miklar áskoranir þar sem stór hluti af nýtanlegu gróðurlendi heimsins er þegar notað í landbúnaðarframleiðslu. Nýtanlegir fiskistofnar eru margir komnir að þolmörkum og vaxandi skortur er á orku og vatni til fæðuframleiðslu. 

Í þessum áskorunum felast jafnframt mikil tækifæri fyrir Ísland sem ætlunin er að varpa ljósi á. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Orkídeu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, Háskólans á Bifröst, Íslandsstofu, Lax-inn fræðslumiðstöðvar, Matís, Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Samtökum smáframleiðenda matvæla og Ölfus Cluster. 

Fundarstjóri er Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. 

Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg, hlekk á skráningarform má finna hér.