fbpx

 

Orkuskipti – Samtal um nýtingu vindorku

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til opinna

funda um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku.

Ráðherra skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk

að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi

og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum.

Starfshópurinn hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra og verða niðurstöður

hennar til umræðu á fundunum og fulltrúar starfshópsins til svara um efni

skýrslunnar.

Stöðuskýrslan dregur saman helstu álitaefni sem ramma inn umræðuna og

boðar ráðherra þess vegna til opinna funda þar sem almenningur fær tækifæri

til þess að kynna sér stöðuskýrsluna og eiga beint samtal við starfshópinn

og ráðherra, áður en hópurinn skilar formlegum niðurstöðum og

tillögum að stefnumótun ríkisins í þessum efnum.

Vindorkufundir