fbpx
4. júlí 2014

Stjórn SASSSASS 3 SASS 4 SASS 5 SASS 6 SASS 7 SASS 8 SASS 9 SASS 10

Ný stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) var kosin á aukaaðalfundi samtakanna á Hótel Selfossi miðvikudaginn 2. júlí. Hana skipa Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps sem var endurkjörinn formaður og Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps er nýr varaformaður samtakanna. Aðrir í nýju stjórninni eru; Páll  Marvin Jónsson Vestmannaeyjum, Sandra Dís Hafþórsdóttir  Árborg , Eggert Valur Guðmundsson Árborg , Sæmundur Helgason  Höfn í Hornafirði,  Anna Björg Níelsdóttir Sveitarfélaginu Ölfusi, Unnur Þormóðsdóttir  Hveragerðisbæ og  Ágúst Sigurðsson Rangárþingi ytra.

Á fundinum fór Gunnar Þorgeirsson, formaður stjórnar SASS yfir störf fráfarandi stjórnar og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2013.

Fundargerð aukaaðalfundarins er komin hér á heimasíðuna.