Náttúruverndarstofnun auglýsir til umsóknar starf mannauðssérfræðings. Leitað er að úrræðagóðum og þjónustulunduðum einstaklingi á líflegan vinnustað með dreifða starfsemi. Stofnunin er ný og í starfinu gefst tækifæri til að hafa mikil áhrif á uppbyggingu mannauðsmála og vinnustaðamenningar.

Höfuðstöðvar Náttúruverndarstofnunar eru á Hvolsvelli sem yrði meginstarfsstöð mannauðssérfræðings með möguleika á fjarvinnu eða viðveru á annarri starfsstöð stofnunarinnar á móti viðveru á Hvolsvelli. Starfsstöðvar Náttúruverndarstofnunar eru alls 15 og staðsettar víða um land. Starfsstöðin á Hvolsvelli er við Austurveg 4 en í húsinu er fjölbreytt og lífleg starfsemi.

Nánari upplýsingar, helstu verkefni og hæfniskröfur er að finna inná vef Starfatorgs:

Mannauðssérfræðingur | Ísland.is