fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun  fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið  er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í sjötta sinn nú í vetur.  Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir,  kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög  o.fl. Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs.  Jafnframt fylgir  verðlaununum  formleg viðurkenning.  Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund  Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands  í janúar nk.

Hér með er óskað eftir tilnefningum  til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa  allir þeir sem tengjast skóla-  og menntunarstarfi með einhverjum hætti, sveitarfélög, skólanefndir,  foreldrar, kennarar og starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf.  Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur.  Tilnefningar skulu hafa borist  til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 3.janúar  nk.