fbpx

Menningarveislan Regnboginn, verður haldin í Vík í Mýrdal dagana 2.-4. október nk. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá listviðburða og er aðgangur ókeypis. Meðal atriða verða leiklist, tónlist og upplestur. Bítlalögin  í léttri kammersveiflu, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson með ljúfa tóna.
Poppveisla hljómsveita úr Mýrdælnum, kórakeppni, söngvarakeppni og fjölbreytt aðkoma nemenda leikskóla, grunnskóla og tónskóla. Regbogamarkaður verður í Leikskálum, með myndlist, ljósmyndum og handverki auk þess sem Jón Adolf Steinólfsson tréútskurðameistari verður með sýningu. Opið hús verður víða í þorpinu.