fbpx

Föstudaginn 8. janúar nk. verður haldið málþing á Hótel Selfossi um væntanlega tilfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Þar er fyrirhugað að fjalla um sem flestar hliðar málsins þannig að  nýtist í áframhaldandi undirbúningi að tilfærslu málaflokksins til sveitarfélaganna á Suðurlandi.  Meðal fyrirlesara verða:  Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verkefnisstjóri málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra, Kristín Sigursveinsdóttir deildarstjóri hjá Akureyrarbæ, Sigurður H. Helgason ráðgjafi verkefnisstjórnar félagsmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga og Laufey Jónsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi.  Gert er ráð fyrir að tími gefist til umræðna og fyrirspurna. Málþingið hefst kl. 10.30 og lýkur kl 15.30.  Þátttaka er öllum heimil.

Þátttaka tilkynnist til SASS á netfangið sass@sudurland.is eigi síðar en 6. janúar  nk.  Þátttökugjald er kr. 3000 (hádegismatur og kaffi innifalið).  Æskilegt  er að nafn og kennitala greiðanda fylgi með.

Sjá meðfylgjandi dagskrá.

Málþing á Hótel Selfossi  um tifærslu málefna fatlaðra  8. janúar 2010

Dagskrá:

Kl. 10.30         Skráning

11.00               Setning:

11.05               Laufey Jónsdóttir, Arna Ír Gunnarsdóttir, Svava Jónsdóttir:  Kynning á starfsemi skrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi:

12.05               Matarhlé

13.00               Sigurður H. Helgason ráðgjafi verkefnisstjórnar:Yfirlit um tilfærslu málefna fatlaðra frá  ríki til sveitarfélaga:

13.30               Kristín Sigursveinsdóttir deildarstjóri: Reynsla Akureyrarbæjar af samþættri félagsþjónustu

14.00               Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir  verkefnisstjóri: Rekstur sveitarfélaga  á Norðurlandi vestra  á málefnum fatlaðra:

14.30               Kaffihlé

14.45               Pallborðsumræður

15.30               Málþingsslit

Málþingsstjóri:  Kristín Hreinsdóttir framkvæmdastjóri Skólaskrifstofu Suðurlands.

Dagskráin er birt með fyrirvaraum hugsanlegar breytingar.

Þátttaka tilkynnist til SASS á netfangið sass@sudurland.is eigi síðar en 6. janúar  nk.

Þátttökugjald kr. 3.000.