fbpx

Velferðarmálanefnd Samtaka  sunnlenskra sveitarfélaga og Menningarráð Suðurlands efna  til  málþings í Versölum Ráðhúsi Ölfuss, Þorlákshöfn,  um málefni innflytjenda á Suðurlandi föstudaginn 11. apríl nk. kl. 10.00 – 16.00.  Skráning á málþingið er á sass@sudurland.is eða í síma 480 8200.  Þátttökugjald er kr. 2000, hádegisverður innifalinn.

 

Á málþinginu verða flutt fjölmörg erindi og umræðuhópar munu starfa og skila áliti, sbr. meðfylgjandi dagskrá.    Stofnanir verða með upplýsingatorg þar sem kynnt verður upplýsingaefni af ýmsu tagi.  Í hádeginu verður boðið upp á mat sem á rætur að rekja til ýmissa heimshorna.

 

Stofnanir sem koma að málþinginu með einum eða öðrum hætti eru:  Samtök sunnlenskra sveitarfélaga,  Menningarráð Suðurlands, Skólaskrifstofa Suðurlands,  Fræðslunet Suðurlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Sýslumaðurinn á Selfossi, Rauði krossinn, Vinnumálastofnun á Suðurlandi, Fjölmenningarsetrið Ísafirði og Þjónustumiðstöð verkalýsfélaganna Selfossi.  Sjá nánar dagskrá málþingsins:

Málþing um málefni innflytjenda á Suðurlandi

11. apríl 2008 kl. 10.00 – 16.00

Fundarstaður:  Versalir í Ráðhusi Ölfuss Þorlákshöfn

Ráðstefnustjóri :  Barbara Guðnadóttir menningarfulltrúi Ölfusi

Dagskrá:

10.00 Setning:   Unnur Þormóðsdóttir formaður Velferðarmálanefndar SASS

10.10 Stefna stjórnvalda í málefnum innflytjenda:  Hildur Jónsdóttir Innflytjendaráði.

10.30 Innflytjendur í þremur sveitarfélögum: réttindi, þátttaka og viðurkenning.:  Unnur Dís Skaftadóttir Háskóla Íslands.

10.50 Innflytjendur á Suðurlandi – ýmsar tölulegar upplýsingar.

11.00 Innflytjendur á vinnumarkaði á Suðurlandi:  Auður Guðmundsdóttir Vinnumálastofnun Suðurlandi.

11.15 Innflytjendur í mæðra- og  ungbarnavernd:  Guðrún Kormáksdóttir Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

11.30 Þurfa íslendingar að endurskoða afstöðu sína til innflytjenda? :

Sr. Baldur Kristjánsson

11.45 Útlendingar og vinnumarkaðurinn: Amal Tamimi formaður lýðræðis- og jafnréttisnefndar Hafnarfjarðar.

12.00 Hádegisverður.  Boðið verður upp  á  mat frá ýmsum heimshornum.

13.00 Móttaka nýrra íbúa í Fjarðabyggð:  Helga Jónsdóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

13.15 Aðkoma almennings að málefnum innflytjenda: Bryndís Friðgeirsdóttir, Rauða Krossinum Ísafirði., félagi í  Rótum – áhugamannahópi um fjölmenningu á Vestfjörðum.

13.30 Samningur Akranessbæjar og Rauða krossins um móttöku innflytjenda:  Anna Lára Steindal Rauða krossinum Akranesi.

13.45 Samvinna og ábyrgð  í málefnum innflytjenda:  Aðalsteinn Baldursson Verkalýðsfélagi Húsavíkur.

14.00 Fjölmenningarsetrið  – þjónusta og starfsemi:  Elsa Arnardóttir.

14.30 Umræðuhópar.

15.00 Álit umræðuhópa.

15.30 Málþingsslit:  Jóna Sigurbjartsdóttir formaður Menningarráðs Suðurlands.

Málþingið er öllum opið.

Þátttaka tilkynnist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á sass@sudurland.is eða í síma 480 8200.

Þátttökugjald kr. 2000.  Hádegisverður innifalinn.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga        Menningarráð Suðurlands