fbpx

Þann 12. maí kl. 09:00-10:30 munu landshlutasamtök sveitarfélaga standa fyrir málstofu um fjölmiðla og landsbyggðir.

Fjallað verður meðal annars um vægi og birtingarmyndir íbúa á landsbyggðunum í frétta- og dagskrárefni, mikilvægi staðbundinna fjölmiðla, hlutverk og skyldur almannaþjónustumiðla gagnvart dreifðum byggðum og farið yfir dæmi frá Norðurlöndum.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Byggðastofnun, RÚV, Háskólann á Akureyri og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Dagskrá:

  • Setning – Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
  • Horft út um glugga borgarmúrsins – Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi og formaður stjórnar SSNE
  • Vandi staðbundinnar fjölmiðlunar – Birgir Guðmundsson dósent við fjölmiðlafræðideild Háskólans á Akureyri
  • Hvítu blettirnir í fjölmiðlun: Lærdómur frá Norðurlöndunum um stöðu staðbundinna miðla og hlutverk ríkisfjölmiðla – Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
  • RÚV okkar allra – Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
  • Pallborðsumræður

Umræðustjóri verður Gunnar Gunnarsson framkvæmda- og ritstjóri Austurfréttar.

Málstofan verður haldin í menningarhúsinu Hofi en vegna sóttvarnareglna er ekki hægt að hafa viðburðinn opinn almenningi.

Málstofunni verður streymt á Youtube og upptaka gerð aðgengileg að henni lokinni. Hlekk á viðburðinn má finna hér.