fbpx

Laugardaginn 8. ágúst nk. verður hinn árlegi markaðsdagur Sólheima þar sem kynning og sala á lífrænt rækuðu grænmeti frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum verður til sölu ásamt ýmsu lífrænu góðgæti frá Engi, Hæðarenda og fleirum. Nærandi, hin nýja brauð- og matvinnsla Sólheima, mun einnig bjóða upp á nýbakað, lífrænt brauð og annað góðgæti. Markaðurinn er á Rauða torginu fyrir framan verslunina Völu listhús og í versluninni sjálfri.
Í skógræktarstöðinni Ölri verða „Reynidagar“ þar sem reyniplöntur verða seldar með 35% afslætti. Leiðsögn um trjásafn Sólheima verður kl. 12:30 undir handleiðslu Særúnar Stefánsdóttur forstöðukonu Ölurs.
Í kaffihúsinu Grænu Könnunni verður m.a. hægt að kaupa sér gómsæta framandi grænmetisrétti sem hinn rómaði kokkur Þórir Bergsson á Grænum kosti framreiðir.
Síðustu tónleikar menningarveislunnar verða svo kl. 14:00 í Sólheimakirkju en þar mun Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson flytja perlur frá liðnum árum af sinni alkunnu snilld.
Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin á Sólheima þennan síðasta laugardag Menningarveislu sumarsins.
Aðgangur er ókeypis og opnunartími er frá kl. 12:00 til 18:00