fbpx

Samhliða nýliðnum sveitarstjórnarkosningum fór fram könnun meðal íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps um hug til sameiningar við önnur sveitarfélög. Knappur meirihluti íbúa eða 50,5 % völdu Já við einhverskonar sameiningu.  Nei sögðu  38,9 %. 10,58 % skiluðu auðu.  73,4 % þeirra sem eru á kjörskrá tóku þátt í kosningunni eða 85,9 % þeirra sem kusu til sveitarstjórnar. Af þeim sem sögðu já voru 47,1 % sem vildu sameingu uppsveita Árnessýslu, 21,4 % sem vildu sameiningu uppsveita og Flóa. 22,9 % vildu sameina öll sveitarfélög í Árnessýlu og 1,5 % vildu sameina öll sveitarfélög á Suðurlandi. 7,1 % atkvæða voru auð eða ógild.