fbpx

 

Föstudaginn 12. mars kl.11:00 mun KPMG og SASS bjóða til gagnvirks fróðleiksfundar um COVID úrræði stjórnvalda.

Á fundinum verður stutt framsaga um helstu úrræðin sem eru í boði auk þess sem þátttakendum gefst færi á að spyrja sérfræðinga KPMG út í einstök atriði. Hugmyndin er að takmarka fjölda þátttakenda við 30 manns í von um gagnvirkt samtal þátttakenda og sérfræðinga KPMG.

Einnig mun Sævar Kristinsson verða með örerindi um ferðaþjónustuna á svæðinu.

Við munum senda skráðum þátttakendum hlekk á fundinn þegar nær dregur – en hér er hægt er að skrá sig á veffundinn.