fbpx

 

Háskóli Íslands stendur í vetur fyrir frumkvöðlahraðli fyrir konur undir merkjum AWE eða Academy for Woman Entrepreneurs í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi. Aðrir samstarfsaðilar eru FKA – félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök kvenna af erlendum uppruna. Þetta er í þriðja sinn sem hraðallinn er haldinn.

Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að fjölga sprotum og efla nýsköpun í íslensku efnahagslífi og að sama skapi auka hlut kvenna á þeim vettvangi. Markmið hraðalsins er að efla konur til að þróa áfram sínar viðskiptahugmyndir, bjóða upp á fræðslu og efla tengslanetið.

Verkefnið er á vegum bandarískra stjórnvalda og er í boði víða um heim. Það samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona og vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um. Ein staðlota verður haldin á Bifröst í samvinnu við Háskólann á Bifröst. 

Virkjum nýsköpunarkraft kvenna!

Umsóknarfrestur í AWE-hraðalinn rennur út á miðnætti fimmtudaginn 9. febrúar. 

Frekari upplýsingar um AWE-hraðalinn er að finna hér.