fbpx

Menntamálanefnd SASS samþykkti á fundi 4. janúar sl. að Fjölbrautaskóli Suðurlands hlyti Menntaverðlaun Suðurlands árið 2010 fyrir verkefnið "Skólinn í okkar höndum". Tilnefningin beinist að fjórum verkefnum sem eru samtvinnuð: Olweusar-áætlunin gegn einelti, bættur skólabragur, dagamunur og heilsueflandi framhaldsskóli. Verðlaunin voru afhent á hátíðarfundi Fræðslunets Suðurlands og Háskólafélags Suðurlands 13. janúar. Grunnskólinn Ljósaborg og Sesseljuhús, umhverfissetur á Sólheimum voru einnig tilnefnd. Þá voru einnig afhentir styrkir úr Vísinda-og rannsóknarsjóði Suðurlands. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhenti styrkina og menntaverðlaunin