fbpx

Eydís Þ. Indriðadóttir hefur verið ráðinn sveitarstjóri Flóahrepps frá og með 1. ágúst n.k. Hún hefur starfað undanfarin ár á sviði sveitarstjórnarmála sem oddviti Ásahrepps.Eydís hefur setið í skipulagsnefndum, skólanefndum, verið formaður Mennta- og menningarnefndar Suðurlands og átt sæti í stjórn Samtaka Orkusveitarfélaga á Íslandi. Hún er menntaður kennari og er með M.Sc. gráðu í mennta- og menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Eydís er búsett í Laufási, Ásahreppi.

Eydís