fbpx

Einstök íslensk upplifun er  6-9 mánaða tilraunaverkefni á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Óskað er eftir samstarfi við þrjú til fimm starfandi fyrirtæki sem vilja aðstoð við að greina sóknarfæri sín og auðga upplifun ferðamanna.

Markmið verkefnisins er að auka virði vöru og þjónustuframboð íslenskrar ferðaþjónustu með aðferðarfræði skapandi greina og upplifunartengdrar ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að stuðla að auknu þverfaglegu samstarfi milli aðila innan ferðaþjónustu og skapandi greina  og stuðla þannig að nýsköpun, samkeppnishæfni og þekkingarmiðlun í ferðaþjónustu.

Leitast verður eftir því að þátttakendur í verkefninu hljóti framúrskarandi þjálfun, leiðsögn og þjónustu reyndra aðila innan skapandi greina ásamt verkefnastjórum Nýsköpunarmiðstöðvar, á  meðan á verkefninu stendur og skulu vera reiðubúnir til að miðla af þekkingu sinni til annarra ferðaþjónustufyrirtækja

Verkefnið er opið fyrir umsóknir til 15. febrúar 2015

Sjá nánar hér