fbpx
 
Byggðaráðstefnan 2023 – Búsetufrelsi? verður haldin 2. nóvember 2023, í Reykjanesbæ. Fjallað verður um búsetufrelsi og niðurstöður rannsóknarverkefnisins Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnið var á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við sérfræðinga við ýmsar íslenskar og erlendar háskólastofnanir. Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land. Leitast er við að ná fram ólíkum sjónarhornum þeirra sem vinna að rannsóknum og stefnumótun á vettvangi byggðamála með áherslu á tiltekinn málaflokk hverju sinni.

Það er von skipuleggjanda að ráðstefnan verði vel sótt og verði til þess að auðga umræðu um búsetu og byggðaþróun. Hvað ræður ákvörðun um búsetu? Hvað gerir samfélag aðlaðandi? Hvað felst í frelsinu? Hverjar eru áskoranirnar og hvar liggja tækifærin? Auk ótal annarra spurninga og sjónarhorna út frá hugtakinu „búsetufrelsi“. Ráðstefnan á erindi við sveitarstjórnarfólk, fulltrúa atvinnulífs, stefnumótendur og alla sem starfa eða sinna rannsóknum á vettvangi byggðamála.

Nánari dagskrá má sjá hér.

Skráning hér

Síðasti dagur skráningar er 26. október.

Ráðstefnugjald er ekkert að þessu sinni en skráning er nauðsynleg, hvort heldur sem þú hyggst mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi. Slóðin verður aðgengileg á heimasíðu Byggðastofnunar.

Fréttin birtist fyrst á vef Byggðastofnunar.