fbpx

Átta fyrirtæki hafa verið valin til þátttöku á fjárfestahátíð Norðanáttar sem fer fram á Siglufirði þann 20. mars næstkomandi. 

Fjárfestahátíð Norðanáttar var haldin fyrst árið 2022 við góðar undirtektir fjárfesta og annarra lykilaðila í vistkerfi nýsköpunar víðsvegar af landinu. Fyrsta árið voru einungis verkefni af Norðurlandi sem tóku þátt, en vegna hversu vel tókst til ákváðu aðstandendur hátíðarinnar að opna viðburðinn fyrir fyrirtæki og frumkvöðla af öllu landinu. Í ár verður engin breyting þar á. 

Hátíðin er vettvangur fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem leita eftir fjármagni og eru tilbúnir að fá fjárfesta að borðinu. Þá er markmið hátíðarinnar einnig að draga fram tækifæri til uppbyggingar á atvinnuvegum og efla nýsköpun í kringum auðlindir landsbyggðanna, en þarna gefst gott tækifæri til þess að mynda tengingar og eiga fyrsta skrefið í átt að framtíðarsamvinnu. 

Áhersla hátíðarinnar í ár eru orkuskipti, hringrásarhagkerfið, fullnýting auðlinda og aðrar grænar lausnir en fyrirtækin sem munu kynna verkefni sín í ár á hátíðinni snerta öll á þessum áherlsum með einum eða öðrum hætti. 

Umsóknarfrestur var til og með 31. janúar sl. og bárust umsóknir úr öllum landshlutum. Sérstök valnefnd mat umsóknir meðal annars út frá því hversu vel verkefnin falla að áherlsum hátíðarinnar og fjárfestatækifæri verkefnisins. 

Verkefnin sem munu taka þátt á fjárfestahátíð Norðanáttar 2023 eru: 

  • Aurora Abalone – The future solution for on-land sustainble shellfish production
  • Circula/Recoma – Recoma gefur sopri nýtt líf
  • FoodSmart Nordic – FoodSmart Nordice framleiðir hágæða vatnsrofið prótein úr sjávarfangi, m.a. kollagen og sæbjúgnaduft. Fersk hráefnin koma úr nærumhverfi sem styður við gæði, sjálfbærni og hringrásarhagkerfið. 
  • Humble – Minnkaðu matarsóun með Humble!
  • Munasafn – We provide infrastructure for municipalities and communities to manage and share items. 
  • Nanna Lín – Nanna Lín varan er leður úr laxaroði í metravís, roðið er brotið niður og endurmótað í breiður áður en það er sútað yfir í leður. 
  • Surova – Making tech to grow veggies that are good for you and for the planet
  • Skógarafurðir – Stækkun vinnslustöðvar fyrir umhverfisvænar íslenskar viðarafurðir.

Í valnefnd sátu Ragnheiður H. Magnúsdóttir hjá Nordic Ignite, Hólmfríður Sveinsdóttir hjá Háskólanum á Hólum, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir hjá Klakk Icelandic Startups, Hreinn Þór Hauksson hjá Íslenskum Verðbréfum, Edda Konráðsdóttir hjá Iceland Innovation Week og Marta Hermansdóttir hjá Eyri Ventures. 

Eitt þeirra átta verkefna sem voru að þessu sinni valin til þátttöku á fjárfestahátíðinni Norðanátt, er sunnlenska nýsköpunarverkefnið Circula/Recoma, rekið af Circula ehf.

Circula ehf. er á lokastigum undirbúnings fyrir stofnun RECOMA Ísland ehf. Markmiðið er að reisa verksmiðju sem sérhæfir sig í framleiðslu á PackWall byggingaplötum. Þessar nýjungarplötur eru búnar til úr endurunnum Tetra Pak umbúðum og notast verður við einkaleyfisverndaða framleiðslutækni. Með þessu frumkvæði mun Circula gefa umbúðunum nýjan tilgang og breyta í hágæða, umhverfisvænar byggingaplötur. Hráefnið fyrir framleiðsluna verður fengið frá helstu söfnunaraðilum landsins. Plöturnar munu bera 80-90% lægra kolefnisspor en sambærilegar byggingarplötur auk þess að stuðla að öðrum jákvæðum umhverfisáhrifum í samræmi við grunnstoðir hringrásarhagkerfisins. Sjá nánari upplýsingar um verkefnið hér.

Verkefnið hefur á fyrri stigum hlotið stuðning frá SASS í gegnum atvinnurþróunar og nýsköpunarflokk Uppbyggingarsjóðs Suðurlands.

SASS óskar Circula/Recoma til hamingju og kemur til með að styðja við bakið á þeim við næstu skref í ferlinu. Við hvetjum frumkvöðla sem eru með hugmyndir að verkefnum og vantar handleiðslu eða aðstoð við þróun verkefnisins, fjármögnun eða annað að setja sig í samband við byggðaþróunarfulltrúa á sínu svæði. Þeir starfa á sjö svæðum vítt og vítt og breitt um Suðurland og veita m.a. ráðgjöf íbúum að kostnaðarlausu. Sjá nánari upplýsingar hér

Að fjárfestahátíðinni Norðanátt standa EIMUR og landshlutasamtökin á Norðurlandi SSNE og SSNV með stuðningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu.  Bakhjarlar Fjárfestahátíðarinnar 2024 eru Tækniþróunarsjóður, KPMG, Nýsköpunarsjóður og KEA.