fbpx

Ársþing SASS var haldið 1. og 2. nóvember sl. á Kirkjubæjarklaustri   Þar voru haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags, Heilbrigðiseftirlits, Skólaskrifstofu og Sorpstöðvar.  Á þinginu var Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýrdalshrepps kosinn nýr formaður SASS í stað Gunnars Þorgeirssonar Grímsnes- og Grafningshreppi sem gegnt hefur starfinu undanfarin 4 ár.  Þingið samþykkti fjölmargar ályktanir sem hægt er að nálgast á síðunni hér til vinstri, ásamt öðru efni frá ársþinginu.  Á aðalfundum SASS og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands var samþykkt að sameina   SASS og AÞS  og verkefni sem  AÞS hefur haft með höndum verði sinnt innan vébanda SASS.   Haldnir verða aukaðalfundir  á næstu vikum þar sem gengið verður formlega frá sameiningunni.