fbpx

 

Mikill meirihluti þeirra sem nýtt hefur Loftbrú frá því að henni var komið á fót er ánægður með úrræðið enn telur ástæðu til að hækka afsláttinn og fjölga ferðum sem séu innifaldar.

Langflestir nýttu ferðirnar til þess að heimsækja ættingja og vini enn margir not Loftbrú einnig til að sækja heilbriðisþjónustu, í tenglsum við íþróttaiðkun og vegna skólasóknar. 

 

Þetta er meðal þess sem fram kom í rannsókn sem að Austurbrú vann í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga á landsbyggðinni og Vegagerðina árið 2022.

Um 76% þátttakenda höfðu nýtt sér Loftbrú, mestmegnis Íslendingar en niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kynna þurfi úrræðið betur fyrir íbúum af erlendum uppruna. 

Verkefnið

Í júní 2020 samþykkti Alþingi úrræðið Loftbrú sem hluta af samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 og opnað var fyrir notkun þess í september 2020. Einstaklingar sem geta nýtt Loftbrú hafa lögheimili í 96 póstnúmerum á Vestfjörðum, hluta af Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Afsláttarkjörin, sem nema 40% af heildarverði miða, eiga að nýtast íbúum svæðanna til að sækja sér miðlæga þjónustu og afþreyingu á höfðuborgarsvæðinu og til að heimsækja ættingja og vini.

Nánari upplýsingar og niðurstöður rannsóknar Austurbrúar má finna hér.