fbpx

Á fundi stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga , sem haldinn var 13. apríl sl.,  var fjallað um  þá fyrirætlun stjórnvalda að leggja fram  þingsályktunartillögu um  rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem ekki er í samræmi við niðurstöður verkefnisstjórnar rammaáætlunar.

 Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða:

 ,,Stjórn SASS lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá stefnu sem ríkisstjórn hefur tekið varðandi þingsályktunartillögu um rammaáætlun en samkvæmt henni verður gengið á svig við niðurstöður þeirra vönduðu þverfaglegu vinnu sem unnin var á vegum verkefnisstjórnar rammaáætlunar.    Stjórn SASS skorar því á Alþingi að farið verði að tillögum  verkefnisstjórnar  um þá virkjunarkosti sem fara eigi  í nýtingarflokk.    Það á ekki síst við um virkjanir í neðri hluta Þjórsár sem koma hvað best út af mögulegum virkjunarkostum  bæði hvað varðar umhverfisáhrif og  þjóðhagslega hagkvæmni og því brýnt að heimila Landsvirkjun að ljúka undirbúningsvinnu til að geta hafið framkvæmdir.  Fyrir sunnlendinga er um mikilvægar framkvæmdir að ræða sem  varða  nauðsynlega uppbyggingu  og eflingu atvinnulífs á Suðurlandi.“