fbpx

Þriðjudaginn 2. júlí var undirritaður samningur milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Skeiða- og Gnúpverjahrepps um almenningssamgöngur.  Samningurinn felur í sér að Skeiða-og Gnúpverjahreppur tekur að sér umsjón og rekstur aksturs fyrir SASS frá Árnesi að Skeiðavegi og verður aksturinn hluti af almenningssamgöngukerfi SASS á Suðurlandi.  Ekið verður alla virka daga ársins kvölds og morgna, í veg fyrir leið 72 að morgni og í veg fyrir leið 73 síðdegis sbr. tímatöflu. Akstur skv. samningnum hefst 19. ágúst nk.