nóvember 2009. Yfirskrift dagskrárinnar  verður Safnahelgi á Suðurlandi með undirtitilinum Matur og menning úr héraði  því auk hins sögulega og menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt  á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu. Það eru Samtök  safna á Suðurlandi og Matarkista Suðurlands sem standa að dagskránni með  hátt í eitt hundrað aðilum. Verkefnið nýtur stuðnings Menningarráðs  Suðurlands. Hugmyndin að baki Safnahelgi á Suðurlandi er að þjappa þeim  fjölmörgu aðilum sem vinna við sunnlenska menningu saman um eina  sameiginlega viðburðahelgi og bjóða íbúum héraðsins og gestum að njóta  þess fjölbreytta menningarstarfs sem er í boði. Á veitingastöðum verður  boðið upp á það besta í sunnlenskri matarhefð. Boðið er upp á dagskrá  frá fimmtudegi til sunnudags, en staðirnir eru þó með mismunandi  opnunartíma. Safnahelgin verður formlega …opnuð í tengslum við málþing sem haldið verður í tilefni 60 ára afmælis Byggðasafnsins í Skógum fimmtudaginn 5. nóvember.
Meðal fjölmargra dagskráratriða má nefna sýningar, tónleika, fyrirlestra, upplestra og leiðsagnir. Svo verður víða hægt að smakka á gömlum og nýjum réttum eins og ástarpungum, heitu súkkulaði, lunda, fýl, sviðum, humarsúpu, pönnukökum, sunnlensku grænmeti og kartöfluréttum. Söfn og veitingastaðir verða opin upp á gátt og starfsfólk þeirra tekur fagnandi á móti gestum og gangandi.
Sunnlensk menningararfleifð býður gesti velkomna á Safnahelgi á Suðurlandi 5. – 8. nóvember. Dagskráin er birt í heild á vefnum www.sofnasudurlandi.is
Nánari upplýsingar veita: Dorothee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands í síma: 896-7511, menning@sudurland.is Anna Sigr. Árnadóttir talsmaður matarklasans í síma: 894-2522. annaarna@gmail.com Lýður Pálsson formaður Samtaka safna á Suðurlandi í síma: 891 7766. lydurp@snerpa.is
																														


