Haldnir  verða átta þjóðfundir í öllum landshlutum á tímabilinu 30. janúar til  20 mars. 
Fundirnir eru hluti af sóknaráætlun 20/20 sem ætlað er að ná  fram samstöðu um lykilákvarðanir og framtíðarsýn fyrir atvinnulíf og  samfélag sem skili okkur til móts við bjartari og betri tíma eins hratt  og örugglega eins og kostur er. Á fundunum  munu koma saman fulltrúar  landshlutanna, sérfræðingar og fulltrúar hagsmunaaðila ásamt jafnmörgum  einstaklingum úr röðum heimamanna sem valdir verða með úrtaki úr  þjóðskrá líkt og gert var fyrir Þjóðfundinn í Laugardalshöll yfir landið  í heild. Búist er við 100 til 200 manns á hvern fund í landshlutunum. Mynd af skiptingu landshluta  Verkefnið  á þjóðfundum landshlutanna verður að setja fram hugmyndir um  framtíðaráform á viðkomandi svæði til eflingar atvinnulífs og samfélags á  grundvelli sérstöðu og styrkleika svæðanna. Þessi vinna verður  grundvöllur að áætlun hvers landshluta innan þeirrar sóknaráætlunar sem  ríkisstjórnin hefur ákveðið að gerð verði og tillaga til þingsályktunar  hefur verið lögð fram um á Alþingi. Gert er ráð fyrir að 2-3 ráðherrar  úr ríkisstjórninni verði á hverjum þjóðfundi í landshlutunum ásamt  fulltrúum allra stjórnmálaflokka. Undirbúningur er í höndum stýrihóps um  sóknaráætlun en framkvæmd þjóðfundanna átta verður á vegum  landshlutasamtaka á hverjum stað.Skipaðir verða samráðshópar í öllum  landshlutum og unnar samþættar áætlanir fyrir hvert svæði um sig sem  hafa sameiginlega skírskotun til eflingar atvinnu, menntunar og  opinberrar þjónustu innan svæðisins.
- Sunnlendingar hittast til þjóðfundar, laugardaginn 6. mars í Fjölbrautaskóla Suðurlands
 
Vefsvæði 20/20 Sóknaráætlunar er á vefslóðinni www.island.is en þar getur almenningur fylgst með framvindu sóknaráætlunarinnar. Á vormánuðum verða jafnframt boðaðir opnir fundir undir merkjum sóknaráætlunar um umbætur og endurskipulagningu í opinberri þjónustu, menntamál, atvinnustefnu, bætta samkeppnishæfni, umhverfismál og náttúruvernd auk fundar þar sem dregnar verða saman sóknaráætlanir landshlutanna. Í stýrihópi Sóknaráætlunar 20/20 eru Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður bæjarráðs á Akureyri og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
																														


