fbpx

forsida

3. nóvember 2023

  Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið í Vík í Mýrdalshreppi 26. – 27. október sl. en þetta var 54. þingið sem haldið er. Þingið var fjölsótt en alls sóttu ríflega 120 fulltrúar þingið og af þeim eru 70 kjörgengir. Á ársþinginu eru aðalfundir SASS, Sorpstöðvar Suðurlands og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands haldnir. Auk almennra aðalfundarstarfa voru

2. nóvember 2023

Íbúakönnun landshlutanna er nú farin af stað að nýju. Sem fyrr er tilgangurinn að kanna hug íbúa um ýmsa þætti tengda búsetu þeirra með það markmiði að afla gagna um stöðu byggðanna á landinu öllu í þeirri viðleitni að bæta lífs- og búsetuskilyrði á svæðunum. Niðurstöðurnar veita innsýn í stöðu íbúa á landsbyggðinni og geta

12. október 2023

Byggðastofnun hefur frá áramótum 2013/2014 gert árlega könnun á staðsetningu starfa á vegum ríkisins. Með störfum á vegum ríkisins er átt við stöðugildi greidd af Fjársýslunni, stöðugildi hjá opinberum hlutafélögum og stofnunum og stöðugildi hjá stofnunum sem hafa meirihluta rekstrartekna sinna af fjárlögum. Fyrir liggja nú tölur um fjölda stöðugilda við áramót 2022/2023 og eru

10. október 2023

Mynd: Nordregio Vefráðstefna á vegum Nordregio, rannsóknarstofnunar um byggðaþróun og skipulagsmál, um framtíð Norðurlanda verður haldin miðvikudaginn 17. október næstkomandi milli kl. 8:30 – 19:00. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er ungt fólk á Norðurlöndum og hvernig við tökum sjónarmið þeirra inn í stefnumótun og áætlanagerð. Ráðstefnan fer fram á ensku. Norðurlandabúar á milli tvítugs og þrítugs eru

6. október 2023

6.10.2023 Alþingi samþykkti fyrir tveimur árum nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Ákvæðið kveður m.a. á um að sveitarstjórn skuli móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin þar á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi

5. október 2023

  Byggðaráðstefnan 2023 – Búsetufrelsi? verður haldin 2. nóvember 2023, í Reykjanesbæ. Fjallað verður um búsetufrelsi og niðurstöður rannsóknarverkefnisins Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnið var á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við sérfræðinga við ýmsar íslenskar og erlendar háskólastofnanir. Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun

3. október 2023

  Byggðaþróunarfulltrúar á Suðurlandi hittust á dögunum til vinnufundar ásamt starfsmönnum SASS. Var fundað í Skálholti með það að markmiði að styrkja samstarfið, efla tengsl og rýna hlutverk byggðaþróunarfulltrúa með sérstakri áherslu á leiðtogafærni og ráðgjafarþjónustu.   Til liðs við hópinn var leiðtogaþjálfarinn, lögfræðingurinn og viðskiptafræðingurinn Elmar Hallgrím Hallgrímsson sem leiddi hópinn í gegnum þjálfun

2. október 2023

  Kosningar í Póllandi verða haldnar 15. október nk. Af því tilefni hefur pólska sendiráðið, í kjölfar hvatningar Tomasz Chochołowicz, formanns enskumælandiráðs Mýrdalshrepps, ákveðið að bjóða upp á kjörstað í Vík sama daga. Allir pólskir ríkisborgarar með kosningarétt geta kosið á kjörstaðnum í Vík með þeim skilyrðum að þeir skrái sig fyrir 10. október. Skráning

5. september 2023

  Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2023. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni

1. september 2023

  Gengið hefur verið frá ráðningum tveggja byggðarþróunarfulltrúa annars vegar fyrir Uppsveitir Árnessýslu og hins vegar fyrir sveitarfélögin Rangárþing ytra og Rangárþing eystra.  Lína Björg hefur verið ráðin byggðaþróunarfulltrúi fyrir sveitarfélögin fjögur í Uppsveitum Árnessýslu, Hrunamannahrepp,                  Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Grímsnes- og Grafningshreppa og Bláskógabyggð. Má finna frétt