fbpx

Hraðallinn byggir á vikulegum fræðslu- erindum, heimavinnu í tengslum við erindin og vikulegri handleiðslu með ráðgjafa.
Gera má ráð fyrir 5 klukkustundum á viku í heildina.

Fræðsluerindi úr öllum áttum, sem dæmi:

  • Reyndir frumkvöðlar og fyrirtækjaeigendur
  • Fjármálasérfræðingar
  • Vörumerkjasérfræðingar
  • Reyndir fjárfestar
  • Vöru-, þjónustu- og/eða upplifunarhönnuðir
  • Sérfræðingar í framkomu og markmiðasetningu
  • Mentorar sem tengjast þínu verkefni

Umfjöllunarefni eftir vikum

Vika 1:  Markmiðasetning og hugmyndin
Vika 2:  Markaðsgreining og -prófanir
Vika 3:  Markaðsáætlun og vörumerkjastjórnun
Vika 4:  Áætlanagerð
Vika 5:  Fjármögnun verkefna
Vika 6:  Stofnun og rekstur fyrirtækja
Vika 7:  Ólíkar aðferðir til kynningar á verkefnum
Vika 8:  Samantekt og verkefnakynningar

SASS áskilur sér rétt til að breyta uppröðun á fræðsluerindum og/eða efni þeirra ef þurfa þykir.

Lokaafurð þátttakenda byggir á þeirra eigin vinnuframlagi en getur verið í formi tilbúinnar vöru á markað, fullbúinnar viðskiptaáætlunar, kynningar til fjármögnunar, frumgerðar á vöru, umsóknar um styrk eða annað sem við á.