fbpx

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) bjóða öllum íbúum Suðurlands til rafræns íbúafundar mánudaginn 5. maí kl. 12:00–13:30 þar sem unnið verður áfram að mótun Sóknaráætlunar Suðurlands.

Fundurinn er liður í samráðsferli við íbúa landshlutans og er öllum opinn. Í vetur tóku hundruð Sunnlendinga þátt í rafrænni könnun sem veitti dýrmæt innsýn í viðhorf og áherslur íbúa varðandi lykilmálaflokka Sóknaráætlunar:
umhverfi – atvinna og nýsköpun – samfélag.

Nú gefst aftur tækifæri til að taka virkan þátt í samtali um framtíð svæðisins. Sóknaráætlun Suðurlands mótar stefnu landshlutans í atvinnu-, nýsköpunar-, samfélags- og umhverfismálum og hefur bein áhrif á forgangsröðun og áherslur næstu ára.

Hvað er Sóknaráætlun?

 

Fundurinn fer fram á ZOOM og er nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku.
Dagsetning: mánudagurinn 5. maí
Tími: kl. 12:00–13:30
Staðsetning: rafrænn fundur (ZOOM) – fundarboð verður sent á mánudagsmorgun 5. maí
Skráning: www.sass.is/soknaraaetlun-sudurlands/skraning

Allir velkomnir að taka þátt og hafa áhrif!