Til baka í yfirlit
18. júní 2017
Hönnun á fræðsluefni fyrir söfn og sýningar á Suðurlandi

Markmið
Markmið verkefnisins er að koma betur á framfæri efnivið safna og setra á Suðurlandi – sérstaklega gagnvart börnum grunnskólaaldri. Verkefnið felur einnig í sér markmið um að efla samstaf og vöruþróun safna og sýninga á Suðurlandi.
Verkefnislýsing
Verkefnið felst í að gera samninga við söfn og sýningar á Suðurlandi sem eru tilbúin til að hanna efni/fróðleik/námsefni fyrir gesti á grunnskólaaldri. Afurðin verður eign viðkomandi safns eða sýningar og m.a. nýtt til frekari markaðssetningar til að laða að grunnskólanemendur.
Verkefnið snýst um að söfnin hanni efn/fróðleik/námsefnii fyrir gesti á grunnskólaaldri sem styður við viðkomandi safn eða sýningu með einum eða öðrum hætti. Efnið væri í formi námsefnis og/eða fróðleiks um safnið sem gestir á grunnskólaaldri geta skoðað, unnið eða tekið þátt í á meðan á heimsókn þeirra á safninu stendur yfir.
Tengsl við sóknaráætlun 2015-2019
Verkefnið tengist flestum meginþáttum í framtíðarsýn Suðurlands sem fram kemur í Stefnumörkun Suðurlands 2016-2020
Verkefnið tengist vel markmiðum og stefnum í Stefnumörkun Suðurlands 2016-2020 í flokki menningarmál.
Þar má helst nefna:
- Menning og listir fái aukið vægi í uppeldi og kennslu barna og fullorðinna
- Ferðaþjónusta geti nýtt menningu og listir svæðisins sem aðdráttarafl og þannig aukið á samstarf þessara aðila (menningartengd ferðaþjónusta)
- Komið verði á markvissu samstarfi allra aðila í menningarmálum á Suðurlandi.
- Aukið samstarf og verkefnaþróun á Suðurlandi leiði til eflingar og sýnileika menningarlífs á svæðinu - jafnframt aukist menningarlegt víðsýni og skilningur íbúa og stjórnsýslu á mikilvægi skapandi greina.
Lokaafurð
Samstarf safna og sýninga á Suðurlandi. Efni sem unnið verður fyrir gesti á grunnskólaaldri og kynnt m.a.fyrir grunnskólum.
Verkefnastjóri
Ingunn Jónsdóttir
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Verkefnastjórn
Guðlaug Ósk Svansdóttir, Ingunn Jónsdóttir og Þórður Freyr Sigurðsson
Framkvæmdaraðili
SASS
Samstarfsaðili
Söfn og sýningar á Suðurlandi
Heildarkostnaður
9.000.000.-
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
9.000.000.-
Ár
2017
Tímarammi
vor 2017 - vor/haust 2018
Staða
Í vinnslu
Númer
173012
Þáttakendur og lokaafurðir
Listasafn Árnesinga – Lyklar að Listasafni Árnesinga
Sagnheimar – Heimurinn og Ísland
Íslenski Bærinn – Torfbærinn
Byggðasafn Árnseinga – Ratað um safn – ráfað í tíma
Njálurefillinn – Njálugáttin
Skálholtsstaður – Ferðalag í tíma og rúmi
Byggðasafnið í Skógum – Fræðsluefni fyrir efra stig grunnskóla
Sæheimar – Fuglar, fiskar og plöntur í Sæheimum
Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Ratleikur
Vatnajökulsþjóðgarður – Lesum í landið
Kötlusetur – Maðurinn og sjórinn
LAVA - Kraftar Íslands
Hvert og eitt safn kynnti verkefni sín á sameiginlegri kynningu 31. maí 2018
Undir hverju verkefni fyrir sig má finna kynningu hvers þátttakaenda.






Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar