Snemma á síðasta ári fékk fjölmenningarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar rausnarlegan styrk frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, SASS. Eftir miklar umræður á fundum ráðsins, var ákveðið að nýta skyldi styrkinn til fjölmenningarlegra kvikmynda- og matarkvölda.

Valdar voru kvikmyndir frá fimm löndum og var matur frá viðkomandi landi í boði hverju sinni. Löndin voru valin með hliðsjón af því hvaða þjóðerni eru fjölmennust í sveitarfélaginu, til að endurspegla þá menningarlegu fjölbreytni sem hér ríkir. Löndin sem urðu fyrir valinu voru Spánn, Rúmenía, Pólland, Suður-Kórea og Serbía. Fjórar sýninganna fóru fram í bíósalnum á Heppu þar sem Heppa annaðist veitingar. Öðruvísi fyrirkomulag var á fimmtu sýningunni sem fór fram á Café Vatnajökli í Öræfum, en þar var boðið upp á hefðbundið bíó-snarl.

Mæting á viðburðina var umfram væntingar og jafnvægi var á milli íslenskra og erlendra gesta á öllum kvöldunum, sem fjölmenningarráð og aðrir skipuleggjendur voru glöð með. Vöktu viðburðirnir almennt mikla ánægju meðal þeirra sem þá sóttu, enda var maturinn æðislegur og kvikmyndirnar áhugaverðar.

Markmið þessara kvölda var að kynna íbúum sveitarfélagsins fyrir menningu ólíkra þjóða á aðgengilegan og skemmtilegan hátt, með áherslu á bæði sjónræna og bragðgóða upplifun. Óhætt er að segja að það hafi tekist með eindæmum vel.

„Að mínu mati skipta svona viðburðir miklu máli. Þeir skapa tækifæri fyrir okkur sem búum hér, hvaðan sem við komum, til að hittast, deila mat og menningu og eiga notalega stund saman. Í þannig samveru myndast tengsl sem styrkja samfélagið og auka skilning og virðingu.“ –  Nejra Mesetovic, formaður fjölmenningarráðs. 

Fjölmenningarráð og verkefnastjóri fjölmenningarmála vonast til að geta endurtekið viðburðina í framtíðinni, enda reynist fátt áhrifaríkara til að skapa tengingu við menningu annarra landa en góður matur og góðar kvikmyndir.

Að lokum vill ráðið koma á framfæri innilegu þakklæti til SASS fyrir veglegan stuðning og jafnframt þakka Bíó Paradís, Heppu og Café Vatnajökli fyrir þeirra mikilvæga framlag.