fbpx

Fréttir

12. janúar 2024

Í ár stendur sunnlenskum börnum og ungmennum í 5. – 10. bekk til boða að taka þátt í Upptaktinum. Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna gefur ungu fólki tækifæri til að senda inn eigin tónsmíð og móta hana svo úr verði fullskapað tónverk sem flutt er í Hörpu í samstarfi við nemendur Listaháskóla Íslands og atvinnutónlistarfólk.

3. janúar 2024

Ert þú með viðskiptahugmynd? Óskað er eftir skráningum, með eða án hugmynda, í Gulleggið 2024. Síðasti dagur til skráningar er 19. janúar nk. og fer skráning fram á vef Gulleggsins, sjá hér. Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008. Gulleggið hefst 20. janúar með opnum Masterclass,

12. desember 2023

  SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2023. Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur. Allir þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með

7. desember 2023

  Orkídea samstarfsverkefni er þátttakandi í ESB verkefninu Value4Farm sem meðal annars mun skoða fýsileika þess að reka litlar lífgasverksmiðjur á Suðurlandi. Orkídea með aðstoð Búnaðarsambands Suðurlands hefur dreift skoðanakönnun sem er til þess gerð að greina viðhorf bænda til þessa og mun bændum hafa borist tölvupóstur þess efnis 1. desember síðastliðinn. Við viljum góðfúslega

28. nóvember 2023

Áfangastaðaáætlun Suðurlands var birt í uppfærðri útgáfu um miðjan október síðastliðinn. Áætlunin er byggð á víðtæku samráði fjölbreytts hóps hagaðila tengdum ferðaþjónustu og fjallar um áfangastaðinn Suðurland í heild sinni. Markaðsstofur landshlutanna hafa annast verkefnastjórn áfangastaðaáætlana síðan vinna við þær hófst árið 2016. Þær eru svar við ákalli um svæðisbundna stefnumótun í kjölfar örs vaxtar

24. nóvember 2023

  Tillaga að svæðisskipulagi fyrir Suðurhálendið til ársins 2042, ásamt umhverfisskýrslu, hefur verið birt til kynningar og athugasemda í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (https://www.skipulagsgatt.is/issues/862). Öllum er frjálst að senda inn umsagnir og þeim skal skila rafrænt í skipulagsgáttina til og með 14. janúar 2024. Í tillögunni er mótuð framtíðarsýn fyrir Suðurhálendið um sterka innviði, umhyggju fyrir auðlindum,

21. nóvember 2023

Byggðastofnun, HMS, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök iðnaðarins og SASS stóðu á dögunum fyrir opnum fundum á Selfossi og Höfn í Hornafirði um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar á Suðurlandi. Fundirnir voru hluti af fundaröð Byggðastofnunar, HMS, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins og landshlutasamtakanna á hverju landsvæði.  Á fundinum var farið yfir stöðu á íbúðamarkaði

15. nóvember 2023

Sunnlensk ungmenni áttu sviðið í Skjálftanum sem fór fram í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn laugardagskvöldið 11. nóvember. Skjálftinn byggir á Skrekk, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Skjálftinn fór nú fram í þriðja sinn, en í fyrsta sinn með áhorfendum þar sem fyrstu tvær keppnirnar voru undir áhrifum heimsfaraldurs. Atriðin komu frá sjö sunnlenskum skólum sem tóku

Stjórn SASS hefur fjallað um tillögur fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og fagráðs menningar hins vegar um úthlutun verkefnastyrkja úr Uppbyggingasjóði Suðurlands. Um er að ræða seinni úthlutun sjóðsins árið 2023. Umsóknir voru samtals 96, í flokki atvinnuþrónar- og nýsköpunarverkefna bárust 22 umsóknir og 74 í flokki menningarverkefna. Að þessu sinni var 36,9 m.kr.

10. nóvember 2023

Í vor samþykkti stjórn SASS að ráðast þyrfti í það á nýjan leik að uppfæra samgönguáætlun SASS. Fyrsta samgönguáætlunin var samþykkt á ársþingi SASS í október 2017. Ári síðar var ákveðið að uppfæra áætlunina þar sem hún þarfnaðist endurskoðunar, og nú vorið 2023 samþykkti stjórn SASS að fara í þriðju uppfærsluna sem kann að vera