Um  80 manns sóttu þjóðfund í Fjölbrautaskóla Suðurlands sl. laugardag.  Fundurinn tókst í 
alla staði mjög vel. Hópnum var skipt niður á 9 borð  og fóru fram fjörugar umræður og hugmyndirnar streymdu fram. Niðurstöður  voru að sama skapi fjölbreyttar og verða þær settar inn hér á vefinn um  leið og búið er að vinna úr þeim.
																														

