fbpx

Um er að ræða fyrirtækjastyrkina Sprota, Vöxt-Sprett og Markaðsstyrk. 
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2021 kl. 15:00.

Tækniþróunarsjóður styrkir nýsköpunarverkefni sem geta aukið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Auglýst er eftir umsóknum í eftirfarandi flokka:

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
  • Markaðsstyrkur er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári. Styrkinn er hægt að sækja um vegna sérstaks markaðsátaks en einnig til uppbyggingar innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.

 

  • Frá og með febrúar 2021 hefur reglum Fræs/Þróunarfræs verið breytt og er nú alltaf opið fyrir umsóknir í sjóðinn.
  • Upphæð hámarksstyrks hefur verið verið hækkuð í 2.000.000 ISK.

 

Fræ og Þróunarfræ hafa það að markmiði að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi sem getur leitt af sér stærra þróunarverkefni. 

Allar umsóknir sem berast eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári.

Fræ er undirbúningsstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.

Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja og einstaklinga til að ráðast í þróunarsamvinnuverkefni.

Nánari upplýsingar hér