fbpx

Fundargerð:
2. fundur verkefnastjórnar Sóknaráætlunar – 2018
Austurvegi 56, 3. apríl, kl. 12:00

Boðuð á fund; Páll Marvin Jónsson, Runólfur Sigursveinsson, Unnur Þormóðsdóttir, Sveinn Sæland og Bryndís Björk Hólmarsdóttir.

Fundinn sátu Páll Marvin Jónsson (í fjarfundi), Runólfur Sigursveinsson og Unnur Þormóðsdóttir.

Einnig sat fundinn Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.

Unnur Þormóðsdóttir setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

2. Fyrri úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands 2018

Verkefnisstjórn Sóknaráæltunar Suðurlands hafði til umfjöllunar tillögur fagráða um úthlutun styrkja á sviði menningarverkefna og atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Um var að ræða fyrri úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands á árinu. Umsóknir að þessu sinni voru 133, þar af í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna 67 og 66 í flokki menningarverkefna.

Verkefnastjórn fór yfir tillögurnar og samþykkti að veita 88 verkefnum styrk, samtals fyrir um 50 mkr. Samþykkt var að veita 36 verkefnum styrk í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna, samtals að upphæð 24.700.000, kr. og 52 verkefnum í flokki menningarverkefna, samtals að upphæð 24.759.000, kr.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna:

Heiti verkefnis: Styrkþegi: Upphæð:
Broddur byggir upp Birna Guðrún Ásbjörnsdóttir 2.000.000
Kjötvinnsla Guðmar Jón Tómasson 1.500.000
Errósetur Errósetur 1.500.000
Markaðssetning og vöruþróun frá fræi… Pizzavagninn ehf 1.250.000
Þjónustuafhending ofurtölvureikniafls Endor ehf. 1.000.000
Billit Lime ehf. 1.000.000
Icelandic Lava Show Icelandic Lava Show ehf. 1.000.000
Endurbygging Vesturbúðar á Eyrarbakka Elfa Dögg Þórðardóttir 1.000.000
Þingvallasveit- á bak við tjöldin Jóhannes Sveinbjörnsson 1.000.000
Kolefnisjöfnun með endurvinnslu á plasti Pure North Recycling ehf. 1.000.000
Ræktun í nýju ljósi 3 Lumen ehf. 1.000.000
Uppsveitaferðir Draumahöll ehf. 750.000
Markaðssetning fyrir Iceland Bike Farm Guðmundur Fannar Markússon 750.000
Buggy X-tream Buggy X-Treme ehf. 700.000
Innri og ytri markaðssetning jarðvangs Katla Jarðvangur ses. 700.000
Krían sveitakrá – markaðsmál og þróun Kríumýri ehf 600.000
Flatey – ferðamannafjós og áningarstaður Selbakki ehf. 500.000
Afþreyingaþróun Midgard Adventure ehf. 500.000
Merkingar fyrir blinda og sjónskerta SB Skiltagerð ehf. 500.000
Virðisaukandi vöruþróun Sólskers ehf. Sólsker ehf 500.000
Markaðsetning á sælkeravöru Sláturfélag Suðurlands svf. 500.000
Umhverfisstjórnunarkerfi f.sveitarfélög Elísabet Björney Lárusdóttir 500.000
Skilti við hellana á Ægissíðu Hellirinn ehf. 500.000
tónlistarnám á gagnvirkum vef/appi Tónkjallarinn ehf. 500.000
Þorpið Vigdís Sigurðardóttir 400.000
Turninn-markaðssetning á nýjung (Tower) Ásgeir Eiríksson ehf 400.000
LM2020 – 1. áfangi markaðssetningar Rangárbakkar, þjóðaleikvangur íslenska hestsins 400.000
Bik – Hönnun og vinnustofa Alda Rose Cartwright 400.000
Samspil stáls og íslenskra afurða Aníta Hanna Sævarsdóttir 400.000
Fjaðrafok Myrra Rós Þrastardóttir 400.000
Varðveisla og prófun ávaxtatrjáayrkja. Ólafur Sturla Njálsson 300.000
Kjötverkun í Hornafirði/ Vöruþróun Pálmi Geir Sigurgeirsson 300.000
Geysir Spa – Luxury Lodge Resort Ýmir Björgvin Arthúrsson 250.000
Sólvangur Icelandic Horse Center Sigríður Pjetursdóttir 250.000
Trophyspotter – Markaðstorg Ingólfur Eyberg Kristjánsson 250.000
Flokkun sorps í fjölbýlishúsum Hans Alan Tómasson 200.000

 

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk í flokki menningarverkefna:

Heiti verkefnis: Styrkþegi: Upphæð:
Sumartónleikar í Skálholtskirkju Sumartónleikar Skálholtskirkju       1.500.000    
Kötluráðstefna – 100 ár frá Kötlugosi Kötlusetur ses.       1.400.000    
Hver/Gerði  – Sigrún Harðardóttir Listasafn Árnesinga       1.000.000    
Menningarstarf að Kvoslæk Rut Ingólfsdóttir           800.000    
Huglæg rými í Listasafni Árnesinga Ólafur Sveinn Gíslason           800.000    
HVÍTUR, HVÍTUR DAGUR (seinni hluti) Anton Máni Svansson           800.000    
Vírdós (Tónlistarh. óhefðb. hljóðfæra) Vilhjálmur Magnússon           800.000    
Myndspor sögulegar ljósm. úr Skaftárhr. Fótspor-félag um sögu og minjar í Skaftárhreppi           750.000    
Vefurinn eldsveitir.is -sögur og myndir Lilja Magnúsdóttir           700.000    
Englar og menn 2018 Björg Þórhallsdóttir           700.000    
Frá Kötlugosi að fullveldi Kirkjubæjarstofa           600.000    
Laugarás – þorpið í skóginum Páll Magnús Skúlason           600.000    
Sagan í sandinum Kirkjubæjarstofa           600.000    
Ferð til eldjöklanna Halldór Ásgeirsson           600.000    
Vorhátíð Kötlu jarðvangs Katla Jarðvangur ses.           550.000    
thetta reddast, KATLA min Magdalena Anna Bartczak           500.000    
Nátturusýn – Lifandi upplifun. Tjörvi Óskarsson           500.000    
Tónleikaröð Base Camp Midgard Base Camp ehf.           500.000    
Sunnansól og hægviðri Lúðrasveit Vestmannaeyja           500.000    
Samfélagsvæðing Safnanna Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses           450.000    
Teiknileikni í torfbænum Kari Ósk Grétudóttir           450.000    
Hver er þetta? Leggjum land undir fót. Héraðsskjalasafn Árnesinga           450.000    
Flutningur á íslensku tónverki. Þorbjörg Jóhannsdóttir           420.000    
Konubókastofa 5 ára Konubókastofan, félagasamtök           400.000    
Glanni Glæpur í Latabæ Hjörtur Már Benediktsson           400.000    
Glæpir og góðverk Leikfélag Selfoss           400.000    
Myndir, músík og mósaík Helga Jónsdóttir           400.000    
Lundaafbrigðin Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses           400.000    
Ungt fólk í tónlist Birgir Nielsen Þórsson           400.000    
Farfuglar Unnur Birna Björnsdóttir           395.000    
Þjóðleikur skapandi leiklist á Suðurland Magnús Jóhannes Magnússon           350.000    
Njálugáttin – upplýsingavefur um Njálu Fjallasaum ehf.           350.000    
Marþræðir – sumardagskrá Byggðasafn Árnesinga           350.000    
Eyjalagakeppni (val á Goslokalagi) Bandalag vestmanneyskra söngva- og tónskálda           350.000    
Breathing Strings Margrét Grétarsdóttir           323.000    
Hangir leyniþráður Bakkastofa ehf.           310.000    
Ör-lög á Suðurlandi Kammerkór Suðurlands           308.000    
Menningardagskrá barna – 1. des. 2018 Bókasafnið í Hveragerði           300.000    
Stokkseyrarvefsíða Pétur Már Guðmundsson           300.000    
Söngur í félagsheimilum Kvennakór Hornafjarðar           300.000    
Saga Stokkseyrar Bjarki Sveinbjörnsson           300.000    
Söfnun upplýsinga um gamlar húseignir  Bragi Bjarnason           300.000    
Vortónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar Lúðrasveit Þorlákshafnar           300.000    
Sigfús Halldórsson og lögin hans Guðný Charlotta Harðardóttir           300.000    
Sígild leikhúslög á goslokum Kristín Jóhannsdóttir           300.000    
Styrkja sýningarmuni í Fischersetri Fischersetur á Selfossi           245.000    
Fiðlufjör á Hvolsvelli Chrissie Telma Guðmundsdóttir           200.000    
Pysjusýning 2018 Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses           200.000    
Pólskir páskar – sýning Lýður Pálsson           190.000    
Litir og línur Ágústa Ragnarsdóttir           168.000    
Í bjarma sjálfstæðis Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses           150.000    
Tenperday.com – Tíu á dag – Fyrsti hluti Valgerður Sigurðardóttir           100.000    

 

Fundi slitið kl. 15:30.