fbpx

Listamannalaun

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.

Tilgangur

Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]

Umsóknarfrestur

Til miðnættis 1. október 2020. Athugið að skrifstofa Rannís lokar kl. 16:00.

Umsóknarkerfi opnar að jafnaði sex vikum fyrir umsóknarfrest.

Umsóknum skal skilað rafrænt; einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn.

Úthlutun listamannalauna 2020

Tölfræði 2020

 

Launasjóðir og greiðslur

Starfslaun listamanna eru veitt úr sex sjóðum:

  • launasjóði hönnuða
  • launasjóði myndlistarmanna
  • launasjóði rithöfunda
  • launasjóði sviðslistafólks
  • launasjóði tónlistarflytjenda
  • launasjóði tónskálda

Umsjón með sjóðunum er í höndum stjórnar listamannalauna.

Starfslaun listamanna eru greidd mánaðarlega. Þau sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur.

Fjárhæð starfslauna skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála [ 4. gr. laga 57/2009].

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn því aðeins tekin til umfjöllunar að framvinduskýrslu vegna fyrri starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, skv. 7. gr. reglugerðar um listamannalaun.

Date

01 okt 2020

Time

16:00

Nánari upplýsingar

Read More
Rannís / Nýsköpunarsjóður námsmanna

Framkvæmdaraðili

Rannís / Nýsköpunarsjóður námsmanna
Phone
5155800
Email
rannis@rannis.is
Website
http://www.rannis.is
SKRÁ HÉR

Comments are closed.