Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl. Veitt eru peningaverðlaun, auk þess fylgir verðlaununum formleg viðurkenning.
Veitt menntaverðlaun:
| 2015 | Sérdeild Suðurlands |
| 2014 | Njálurefillinn |
| 2013 | Leikskólinn Heklukot á Hellu |
| 2012 | Laugalandsskóli í Holtum |
| 2011 | Grunnskólinn í Þorlákshöfn |
| 2010 | Fjölbrautaskóli Suðurlands |
| 2009 | Flúðaskóli |
| 2008 | Fræðslunet Suðurlands |