623. fundur stjórnar SASS

Haldinn í Hvolnum, Hvolsvelli 
6. júní 2025, kl. 11:00

 

Þátttakendur: Anton Kári Halldórsson formaður, Sandra Sigurðardóttir, Árni Eiríksson – sem tók þátt á Teams, Brynhildur Jónsdóttir, Jóhannes Gissurarson, Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, Eyrún Fríða Árnadóttir sem varamaður fyrir Gauta Árnason, Helga Jóhanna Harðardóttir og Arnar Freyr Ólafsson. Fundinn situr einnig Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri sem jafnframt ritar fundargerð. Gestir fundarins voru Ólafur Gestsson endurskoðandi frá PWC sem fór yfir drög að ársreikningi undir fyrsta lið, og Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri þróunarsviðs SASS sem fór yfir Sóknaráætlun Suðurlands og starfsskýrslu SASS v. 2024. 

Formaður býður fundarmenn velkomna á fundinn sem nú er haldinn í Hvolnum, Hvolsvelli en eftir fundinn fer fram vinnustofa á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

1. Ársreikningur SASS 2024

Ólafur fer yfir ársreikninginn og svarar spurningum fundarmanna. 

Stjórn SASS samþykkir samhljóða ársreikning SASS vegna ársins 2024. Rafræn undirritun verður send á stjórnarmenn í framhaldi. 

2. Sóknaráætlun Suðurlands 

Þórður kynnir sóknaráætlun sem er komin inn til ráðuneytis og mun klárst sem samþykkt plagg í framhaldi. 

Stjórn SASS samþykkir samhljóða Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029 sem heildstæða stefnu landshlutans um byggðaþróun fyrir tímabilið, í samræmi við lög nr.69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlanir landshluta. Áætlunin er jafnframt grundvöllur samnings milli SASS og ráðuneyta um ráðstöfun fjármuna til byggðaþróunar á svæðinu. 

Áætlunin byggir á víðtæku samráði og samstarfi við sveitarfélögin á Suðurlandi, íbúa, fyrirtæki, stofnanir og aðra hagaðila. Sérstakt samráð var haft við almenning með nýstárlegu vefsamráði í gegnum samfélagsmiðla og myndskeið með SAHARA auglýsingastofu, auk rafrænna íbúafunda sem RATA stýrði. Fjölmargar umsagnir bárust og farið var yfir þær með heildstæðum hætti sem nýttist við lokafrágang áætlunarinnar. 

Stjórn færir starfsfólki SASS, einkum sviðsstjóra og kyningar- og verkefnastjóra, sérstakar þakkir fyrir öfluga vinnu við stefnumótun og framsetningu. Íbúum fyrir virka þátttöku í samráði, hagaðilum fyrir sítt framlag og kjörnum fulltrúum á Suðurlandi fyrir skýrar áherslur í gegnum vinnustofur á síðustu aðalfundum og þátttöku á öðrum samráðsfundum. 

Áætlunin er lifandi stefna sem byggir á fjórum stoðum: atvinnu og nýsköpun, samfélagi, umhverfi og innviðum. Hún mun stýra áherslum í úthlutun styrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, vali á áhersluverkefnum, mótun starsmarkmiða SASS og annarri forgangsröðun samtakanna á tímabilinu. 

Stjórn leggur áherslu á að næstu skref í framkvæmd áætlunarinnar verði fagleg og gagnsæ. Stjórn SASS mun á næsta fundi stjórnar skipa fagráð sem mun vinna náið með verkefnisstjóra sóknaráætlunar að útfærslu á verklagi, forgangröðun og eftirfylgni aðgerða. Fagráð sem stjórn skipar mun gegna lykilhlutverki sem ráðgefandi aðili stjórnar. 

Jafnframt er legat til að kynna stefnuna vel og leita samstarfs um markmiðin.  

3. Starfsskýrsla SASS 2024

Þórður kynnir starfsskýrslu SASS v.2024 sem hefur verið send inn til Byggðastofnunar og samþykkt þar.

Stjórn SASS samþykkir samhljóða starfsskýrslu SASS fyrir árið 2024, sem lögð hefur verið fram á þessum tímapunkti í samræmi við samning SASS og Byggðastofnunar um atvinnu- og byggðaþróun á Suðurlandi. Samningurinn er meginrammi og grunnur að starfsemi þróunarsviðs SASS, en skýrslan nær jafnframt yfir alla starfsemi samtakanna.

Skýrslan uppfyllir formkröfur Byggðastofnunar og hefur verið send stofnuninni ásamt viðauka. Í viðaukanum má sjá ítarlegt yfirlit yfir helstu þætti starfseminnar á árinu, þar á meðal:

  • Samtals 3.700 vinnustundir skráðar í atvinnu- og byggðaþróunarverkefni og þar af um 1.100 vinnustundir í veitta ráðgjöf.
  • Yfir 30 námskeið, vinnustofur og viðburðir á vegum byggðaþróunarfulltrúa.
  • Um 80 markvissar kynningar og auglýsingar um ráðgjöf SASS á samfélagsmiðlum og í héraðsmiðlum.
  • Fjölbreytt verkefni innan nýsköpunar, fræðslu, menningar, samfélagslegra viðfangsefna víðs vegar um Suðurland – allt frá vinnu við rannsóknarkafbát í Eyjum til foreldrahandbókar á þremur tungumálum, matarmenningarverkefni og stefnumótunarvinna á sviði atvinnumála á svæðinu.

Stjórn lýsir ánægju sinni með framvindu ársins og þá miklu breidd sem birtist í verkefnavali og áherslu byggðaþóunarfulltrúa. Þeir gegna lykilhlutverki í innleiðingu stefnu og áætlana SASS í samráði við hvert svæði byggðaþróunarfulltrúa og skýrslan dregur fram mikilvægi þeirra í að tengja saman stefnumörkun, ráðgjöf og frumkvæði íbúa og hagaðila. 

Stjórn færir starfsfólki SASS, einkum sviðsstjóra og kynningar- og verkefnastjóra, sem og byggðaþróunarfulltrúum á svæðunum, sérstakar þakkir fyrir faglega og árangursríka vinnu á árinu 2024.

Ekki fleira rætt og fundi slitið kl. 12:15

Næsti fundur stjórnar verður haldinn föstudaginn 27. júní nk. kl. 11:00

 

623. fundur stjórnar SASS (.pdf)