Til baka í yfirlit
19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð EES sem miða að samstarfi við pólska aðila á sviði menningar og lista annars vegar og menningararfs hins vegar.
Menning er mikilvægur drifkraftur í samfélaginu á Suðurlandi og vinnur SASS markvisst að því að efla og styðja við menningarstarf í landshlutanum, m.a. í gegnum Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Menningaráætlun EES er nokkuð umfangsmikil og býður sjóðurinn upp á spennandi möguleika til að lyfta sunnlensku hugviti, listum og ríkulegri menningararfleifð upp á alþjóðlegt plan.
Samstarf við aðila frá gjafaríkjum EES (Íslandi, Noregi eða Liechtenstein) er skilyrði fyrir úthlutun. Þótt pólskir aðilar leiði verkefnin geta hugmyndirnar hæglega kviknað hér á landi og hentað vel til uppbyggingar í sunnlenskum samfélögum.
Opið er fyrir umsóknir á tveimur meginsviðum:
Menning og listir – Umsóknarfrestur 10. nóvember 2026
Meginmarkmið þessa styrkjasviðs er að verkefni nýti listir og menningu til að auka skilning á frelsi listrænnar tjáningar, efla menningarlega samræðu, vinna gegn rangfærslum og draga úr ójöfnuði. Verkefni vinni gegn félagslegri einangrun og vantrausti og stuðli að aukinni félagslegri samheldni.
Til ráðstöfunar eru 3,5 milljónir evra og eru styrkupphæðir 100.000 til 500.000 evrur á hvert verkefni.
Menningararfur – Umsóknarfrestur 31. desember 2026
Suðurland býr yfir ríkulegum menningararfi og fjölmörgum söfnum og setrum. Markmið þessa sviðs er að blása nýju lífi í menningararf, tryggja sjálfbæra nýtingu hans og tengja betur við nærsamfélagið. Sérstök áhersla er lögð á óáþreifanlegan menningararf, svo sem eldri hefðir, þekkingu, verklag og handverk.
Til ráðstöfunar eru rúmlega 64 milljónir evra og nema styrkupphæðir 1 til 3,5 milljónum evra á hvert verkefni.
Rannís aðstoðar við að finna samstarfsaðila
Þar sem verkefnin krefjast pólsk-íslensks samstarfs leita margir pólskir aðilar nú að samstarfsaðilum á Íslandi. Við hjá SASS hvetjum sunnlenska aðila í menningargeiranum til að kynna sér þessi köll tímanlega.
Hægt er að leita til Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís) sem veitir aðstoð og upplýsingar við að tengja saman íslenska og pólska aðila. Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð EES má finna á vef EEA and Norway Grants eða hjá Rannís.
Fleiri fréttir

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar