Til baka í yfirlit
26. ágúst 2026
Styrkjagátt SASS opnuð: Allir sjóðir á einum stað

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa opnað nýja og gagnvirka styrkjagátt á vef sínum. Gáttin veitir heildaryfirsýn yfir íslenska og norræna sjóði og mun stórauðvelda sunnlensku atvinnulífi, frumkvöðlum og félagasamtökum að sækja um fjármagn til spennandi verkefna.
Einfaldara að finna rétta sjóðinn
Einn helsti kostur nýju gáttarinnar er gagnvirkt yfirlit þar sem notendur geta flokkað og leitað að sjóðum sem henta nákvæmlega þeirra viðfangsefni. Með því að flokka sjóðina er komið til móts við ólíkar þarfir umsækjenda. Flokkarnir eru eftirfarandi:
- Sveitarfélög
- Fyrirtæki
- Frumkvöðlar
- Félagasamtök
- Íþróttafélög
- Skólar og rannsóknir
- Listafólk
- Einstaklingar
Upplýsingar og umsóknarfrestir
Gáttin er hönnuð til að veita allar nauðsynlegar grunnupplýsingar á einum og sama staðnum. Notendur geta séð tilgang hvers sjóðs ásamt því að fylgjast með umsóknarfrestum. Þá fylgja beinir hlekkir inn á heimasíður sjóðanna.
Styrkir stoðir undir sunnlenskt samfélag
Hlutverk SASS er að styðja við og efla byggðaþróun í öllum landshlutanum. Með Styrkjagáttinni vill SASS stuðla að því að hugmyndir heimamanna strandi ekki á skorti á upplýsingum um fjármögnun. Öflug upplýsingamiðlun sem þessi er hluti af því að styrkja samkeppnisstöðu Suðurlands á landsvísu, styðja við frumkvöðla- og menningarstarf ásamt því að auðvelda innviðauppbyggingu.
Öll áhugasöm eru hvött til að kynna sér nýju Styrkjagáttina á vef SASS og nýta sér þennan nýja vettvang til að láta hugmyndir verða að veruleika.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Ullarkögglar og Akur Bjór í Startup Landið 2026
Lesa nánar

7. október 2026
SASS sendir inn umsögn vegna Náttúrupassa: Aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu
Lesa nánar

5. október 2026
Landsvirkjun styður við Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar

30. september 2026
Við erum einfaldlega sterkari saman- Hugleiðingar framkvæmdastjóra
Lesa nánar