Til baka í yfirlit
14. október 2026
Rarik bætist í hóp bakhjarla Uppsprettu Suðurlands

Rarik hefur gerst bakhjarl nýsköpunar- og atvinnulífshátíðarinnar Uppsprettu Suðurlands. Samstarfið byggir á sameiginlegri sýn aðilanna um eflingu byggðar, nýsköpun og framþróun í sunnlensku atvinnulífi.
Uppspretta Suðurlands, sem haldin verður í Ölfusi dagana 6.–7. nóvember næstkomandi, verður stærsti tengslavettvangur landshlutans fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og fjárfesta. Aðkoma Rarik að hátíðinni fellur einstaklega vel að kjarnastarfsemi og framtíðarsýn fyrirtækisins, en í stefnu Rarik er rík áhersla lögð á samfélagsábyrgð og að efla hag byggða á dreifiveitusvæðum sínum.
Samfélagsábyrgð og nýsköpun í forgrunni
Við undirritun samkomulagsins kom fram að hraðar tækniframfarir og orkuskipti kalli á nýjar lausnir í atvinnulífinu. Með stuðningi við Uppsprettu vill Rarik leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar og verðmætasköpunar á Suðurlandi sem skilar sér í aukinni samkeppnishæfni svæðisins alls.
Daníel Leó Ólason, deildarstjóri nýlagna hjá Rarik á Suðurlandi, fagnar samstarfinu og segir það falla beint að markmiðum fyrirtækisins. „Hjá Rarik setjum við umhverfi, samfélagsábyrgð og eflingu byggðar í forgang. Suðurland er í gríðarlegum vexti og Uppspretta Suðurlands er einmitt sá vettvangur sem þarf til að tengja fólk saman og kynnast nýrri tækni og nýsköpun. Það er okkur sönn ánægja að taka þátt í þessari vegferð með Sunnlendingum.“
Trú á sunnlensku hugviti
Markmið Uppsprettu Suðurlands hefur frá upphafi verið að vekja athygli á þeim krafti og fjölbreytileika sem einkennir atvinnusvæðið á Suðurlandi.
Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri hjá SASS, segir samstarfið við Rarik skipta sköpum fyrir framkvæmd hátíðarinnar. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá jafn sterkan samstarfsaðila og Rarik til liðs við okkur. Þetta sýnir í verki mikla trú á sunnlensku atvinnulífi. Við vitum að tækifærin verða til þegar fólk hittist og skiptist á hugmyndum. Með öflugum bakhjörlum getum við gert Uppsprettu að þeim suðupotti hugmynda sem Suðurland á skilið.“
Uppspretta Suðurlands er samstarfsverkefni SASS, Háskólafélags Suðurlands og Markaðsstofu Suðurlands.

T.v. Brynja Gunnarsdóttir skrifstofustjóri Rarik á Selfossi, Lína Björk Tryggvadóttir verkefnastjóri byggðamála hjá SASS, Daníel Leó Ólason deildarstjóri nýlagna hjá Rarik á Suðurlandi og Margrét Pollý Hansen verkefnstjóri nýsköpunar hjá Háskólafélagi Suðurlands.
Fleiri fréttir

12. október 2026
Vitum við hvað nágranninn er að skapa?
Lesa nánar

9. október 2026
Ullarkögglar og Akur Bjór í Startup Landið 2026
Lesa nánar

7. október 2026
SASS sendir inn umsögn vegna Náttúrupassa: Aðför að sunnlenskri ferðaþjónustu
Lesa nánar

5. október 2026
Landsvirkjun styður við Uppsprettu Suðurlands
Lesa nánar