EN

Til baka í yfirlit

12. febrúar 2024

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar fyrir grunnskólabörn

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar fyrir grunnskólabörn

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytisins, er verkefninu ætlað að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldir að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar sem sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 17. mars 2024. 

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu  formi á heimasíðu List fyrir alla, www.listfyriralla.is

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar fyrir grunnskólabörn