EN

Til baka í yfirlit

3. júlí 2026

Nýr vefur SASS tekinn í notkun

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa opnað nýjan vef sem ætlað er að bæta upplýsingagjöf og stórefla þjónustu við íbúa, fyrirtæki og sveitarfélög á öllu Suðurlandi. Við hönnun vefsins var sjónum sérstaklega beint að því að gera hann eins aðgengilegan og skýran og kostur er, óháð því hvort hann er skoðaður í tölvu eða á snjalltækjum.

Aukin þjónusta við sunnlenskt samfélag

Meginmarkmið nýja vefsins er að veita skýra yfirsýn yfir fjölbreytta starfsemi SASS og auðvelda notendum að nálgast þær upplýsingar og þjónustu sem samtökin veita á Suðurlandi. Viðmótið hefur verið endurhannað til að draga fram lykilverkefni á borð við Uppbyggingarsjóð Suðurlands, Sóknaráætlun og þau fjölbreyttu verkefni sem SASS stendur að.

Líflegri og aðgengilegri upplýsingamiðlun

Sérstök áhersla var lögð á upplifun notandans og aðgengi fyrir alla hópa samfélagsins. Nýi vefurinn gerir starfsfólki SASS kleift að miðla nýjustu fréttum, fundargerðum og viðburðum sem SASS er hluti af með mun skilvirkari hætti en áður. Þannig geta Sunnlendingar treyst því að upplýsingar séu ávallt nýjar og auðfundnar.

Þótt nýi vefurinn sé nú kominn í loftið er uppbyggingunni hvergi nærri lokið. Á næstu vikum verður áfram unnið hörðum höndum að því að flytja yfir eldra efni, mikilvæg gögn og fréttasafn af fyrri síðu samtakanna. Markmiðið er að tryggja að öll sagan og hagnýtar upplýsingar fyrir sunnlenskt samfélag skili sér örugglega á nýja staðinn. Vefurinn mun því taka stöðugum framförum og fínpússunum á næstunni. Við biðjum notendur um að sýna þessu innleiðingarferli þolinmæði á meðan vefurinn er að taka á sig endanlega mynd, en hvetjum ykkur jafnframt til að senda okkur ábendingar ef eitthvað má betur fara. Ábendingar má senda á stefanf@sass.is

SASS fagnar þessum tímamótum samtakanna og býður Sunnlendinga og aðra gesti hjartanlega velkomna á nýja vefinn.