Til baka í yfirlit
11. nóvember 2022
Uppbyggingarsjóður Suðurlands: úthlutun styrkja haust 2022


Stjórn SASS hefur fjallað um tillögur fagráðs atvinnu og nýsköpunar annars vegar og fagráðs menningar hins vegar um úthlutun verkefnastyrkja úr Uppbyggingasjóði
Suðurlands. Um er að ræða síðari úthlutun sjóðsins árið 2022. Umsóknir voru samtals 90, í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna bárust 28 umsóknir og 62 í flokki menningarverkefna.
Að þessu sinni var 32,6 m.kr. úthlutað, 13,1 m.kr. í flokk atvinnu og nýsköpunar og 19,5 m.kr. í flokk menningar, til samtals 58 verkefna. Samþykkt var að veita 14 verkefnum styrk í flokki atvinnu og nýsköpunar og 44 verkefna í flokki menningarverkefna.
Hæsta styrkinn í flokki atvinnu og nýsköpunar hlaut að þessu sinni Langa ehf. fyrir verkefnið Afurðagerð og vörumerkjaþróun fyrir lífefnavinnslu að upphæð 2 m.kr., markmið verkefnisins er þróun á næringaríkum neytendavörum sem innihalda kollagen og önnur lífefni sem verða framleidd í nýrri verksmiðju í Vestmannaeyjum.
Í flokki menningarverkefna hlaut Home Soil ehf. fyrir verkefnið Ástin sem eftir er (seinni hluti) styrk að upphæð 1. m.kr., markmið verkefnisins er að gera kvikmynd í fullri lengd, sem mun stuðla að fjölbreyttu og öflugu menningarlífi.
Þá hlaut Góli ehf. fyrir verkefnið Páskatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands 2023 styrk að upphæð 1. m.kr., markmiðið er að halda páskatónleika Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands í Selfosskirkju í byrjun apríl nk. ásamt gestum.
Lista yfir öll verkefni sem hlutu styrk má sjá hér.

Fleiri fréttir

26. ágúst 2026
Styrkjagátt SASS opnuð: Allir sjóðir á einum stað
Lesa nánar

26. ágúst 2026
Sameiginlegur vinnufundur byggðaþróunarfulltrúa Suðurlands
Lesa nánar

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar