Til baka í yfirlit
27. janúar 2021
Uppbyggingarsjóð Suðurlands is now open for applications for spring 2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2021. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér.
Við bendum á nýja ráðgjafasíðu með leiðbeiningum um umsóknarskrif og mótun verkefna.
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einka aðgangi verkefnastjóra. Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, eða bóka tíma í ráðgjöf hér
Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 3. mars 2021.


Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar