Til baka í yfirlit
14. ágúst 2009
Tvöföldun Suðurlandsvegar verði sett í forgang
Á fundi stjórnar SASS í dag, 14. ágúst, var fjallað um forgangsröðun vegaframkvæmda vegna hugsanlegrar fjármögnunar lífeyrissjóða.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt:
,,Stjórn SASS ítrekar afstöðu samtakanna um nauðsyn tvöföldunar Suðurlandsvegar á milli Selfoss og Reykjavíkur. Við forgangsröðun framkvæmda í vegagerð hlýtur tvöföldun Suðurlandsvegar að vera í fyrsta sæti. Kemur þar margt til. Í fyrsta lagi er mjög mikil og vaxandi umferð um Suðurlandsveg. Í öðru lagi er slysatíðni á veginum há og því brýn nauðsyn ...á úrbótum. Í þriðja lagi liggur fyrir að arðsemi tvöföldunar er mjög mikil, sbr. svar samgönguráherra við fyrirspurn á Alþingi 11. ágúst sl. Í fjórða og síðasta lagi er ljóst að almenningur telur þessa framkvæmd langbrýnasta úrlausnarefnið í samgöngumálum þjóðarinnar, sbr. nýgerða skoðanakönnun Gallup. Þá liggur fyrir að skipulagsmál standa ekki í vegi fyrir því að hægt sé að hefja verkið og nú þegar er hluti leiðarinnar tilbúinn til útboðs hjá Vegagerðinni.
Í ljósi alls þessa skorar stjórn SASS á Alþingi og samgönguráðuneyti að séð verði til þess að tvöföldun Suðurlandsvegar verði forgangsverkefni.

Fleiri fréttir

24. ágúst 2026
Ný stjórn og starfsfólk SASS stilla saman strengi
Lesa nánar

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar