EN

Til baka í yfirlit

5. október 2009

Sýningar í Tré og list, Forsæti.

Tvær sýningar eru nú í gangi í Tré og list. Annarsvegar "Hennar fínasta púss" sem samanstendur af upphlutssettum, skyrtum, svuntum og slifsum. Þar er áhersla lögð á að sýna ótrúlega fjölbreytni í efnis-og litavali. Hinsvegar er sýning á gömlum vefstól og íslenskum vefnaði, það elsta frá

árunum 1874-1880 eftir Guðrúnu Gestsdóttur. Einnig eru ofin verk eftir Ragnhildi Ingvarsdóttur og Kristínu Ketilsdóttur. Uppsetning sýninganna var í höndum Oddnýjar Kristjánsdóttur, klæðskera. Sýningar munu standa fram til áramóta.

Sýningar í Tré og list, Forsæti.
Sýningar í Tré og list, Forsæti.