Til baka í yfirlit
7. september 2026
SASS hafnar skattahækkun á baðlón: Ógnar 400 heilsársstörfum á Suðurlandi

Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hefur samþykkt bókun þar sem lagst er alfarið gegn fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Hækkunin ógnar yfir 400 heilsársstörfum og ríflega 35 milljarða króna fjárfestingu á Suðurlandi. Stjórnin krefst þess að áformin verði dregin til baka.
Mikilvæg undirstaða heilsársferðaþjónustu á Suðurlandi
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Baðlón eru mikilvægur hluti af ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi. Í landshlutanum telur fjárfesting í starfsemi baðlóna og tengdum rekstri yfir 35 milljarða króna beint og þau skapa rúmlega 400 heilsársstörf. Þá er ótalin sú óbeina og afleidda fjárfesting og fjöldi starfa sem skapast hefur vegna baðlónanna. Hafa ber í huga að hluti þessarar uppbyggingar hefur ekki enn opnað fyrir gestum, svo án skattahækkunar munu tekjur ríkisins af baðlónum aukast verulega vegna fleiri baðlóna sem eru í uppbyggingu á landsbyggðinni, þar á meðal Suðurlandi.
Áhrif þessarar uppbyggingar ná langt út fyrir fyrirtækin sjálf. Starfsemi baðlóna er ein mikilvægasta undirstaða heilsársferðaþjónustu í landshlutanum enda hafa þau opið allt árið um kring og laða þannig að gesti að vetri sem sumri. Baðlón eru ekki aðeins vinsælasta afþreying ferðamanna sem sækja Ísland heim heldur njóta þau jafnframt mikilla vinsælda meðal Íslendinga sem ferðast innanlands og heimamanna. Þau skapa með starfsemi sinni grundvöll fyrir auknum umsvifum innan ferðaþjónustunnar og hjá fjölmörgum öðrum fyrirtækjum í landshlutanum sem þjónusta þau með einum eða öðrum hætti.
Forsendur fjárfestinga brostnar án fyrirvara
Tímasetning virðisaukaskattshækkunarinnar er sérstaklega slæm þar sem baðlón landshlutans eru mörg hver nú í umfangsmiklum fjárfestingarfasa. Sum þeirra vinna að uppbyggingu nýrra áfangastaða með baðlónum en önnur stefna meðal annars á stækkun á núverandi starfsemi. Þær fjárfestingarákvarðanir sem liggja fyrir hafa verið teknar á grundvelli núverandi rekstrarumhverfis. Breyting sem þessi, án eðlilegs fyrirvara, setur forsendur fjárfestinganna og áætlanagerð baðlóna í uppnám til framtíðar. Hún hefur nú þegar gert það að verkum að uppbyggingaráform hafa verið sett í biðstöðu í landshlutanum og mun draga úr hvata og getu baðlóna til frekari fjárfestinga. Staðreyndin er sú að fyrirhuguð skattahækkun leggur heilsársstörf á Suðurlandi að veði og getur hæglega orðið þess valdandi að umsvif innan ferðaþjónustunnar sem og í öðrum atvinnugreinum dragist saman með tilheyrandi tekjutapi fyrir ríkissjóð.
Grefur undan uppbyggingu sveitarfélaga
Sveitarfélög landshlutans eru ekki aðeins óbeinir áhorfendur að uppbyggingu baðlóna. Þau hafa lagt í umtalsverða vinnu og tekið á sig ýmsar skuldbindingar vegna skipulags, veitna og annarrar innviðauppbyggingar til að veita þeim brautargengi. Fyrirhuguð skattahækkun breytir ekki aðeins rekstrarumhverfi fyrirtækjanna heldur grefur jafnframt undan þeirri atvinnuuppbyggingu sem sveitarfélögin hafa stutt og fjárfest í.
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga leggst alfarið gegn fyrirhugaðri virðisaukaskattshækkun á aðgang að baðlónum og krefst þess að hún verði dregin til baka.
Bókun stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Baðlón eru mikilvægur hluti af ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi. Í landshlutanum telur fjárfesting í starfsemi baðlóna og tengdum rekstri yfir 35 milljarða króna beint og þau skapa rúmlega 400 heilsársstörf. Þá er ótalin sú óbeina og afleidda fjárfesting og fjöldi starfa sem skapast hefur vegna baðlónanna. Sveitarfélögin hafa lagt í umtalsverða vinnu og tekið á sig ýmsar skuldbindingar vegna skipulags, veitna og annarrar innviðauppbyggingar til að veita baðlónum brautargengi. Fyrirhuguð skattahækkun breytir ekki aðeins rekstrarumhverfi fyrirtækjanna heldur grefur jafnframt undan þeirri atvinnuuppbyggingu sem sveitarfélögin hafa stutt og fjárfest í.
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga leggst alfarið gegn fyrirhugaðri virðisaukaskattshækkun á aðgang að baðlónum og krefst þess að hún verði dregin til baka.



