Til baka í yfirlit
24. ágúst 2018
Rannís auglýsir eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð

Umsóknarfrestur er til 17. september 2018, kl. 16:00.
Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sprota, Vexti/Spretti og Markaðsstyrk.
- Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
- Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
- Markaðsstyrkur er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári. Styrkinn er hægt að sækja um vegna sérstaks markaðsátaks en einnig til uppbyggingar innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
Umsóknarfrestur er til 17. september 2018, kl. 16:00.
Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
Nánari upplýsingar á síðu Tækniþróunarsjóðs.

Fleiri fréttir

17. júlí 2026
Sveitarfélög um allt land krefjast svara um framtíð heilbrigðiseftirlitsins
Lesa nánar

13. júlí 2026
Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó
Lesa nánar

8. júlí 2026
FabLab-smiðjur á Suðurlandi fá tvær milljónir króna til að efla stafræna hæfni ungmenna
Lesa nánar

6. júlí 2026
Úr Hvolnum í Tjarnarbíó: VOX Rangárþing sýnir ÁST í höfuðborginni
Lesa nánar