Til baka í yfirlit
5. desember 2019
Óskað er eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2019

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2019.
Hverjir geta tilnefnt?:
Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.
Hverja er hægt að tilnefna?:
Alla sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.
Hvenær:
Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti þriðjudaginn 7. janúar n.k.
Hvert:
Tilnefningarnar sendist á netfangið: menntaverdlaun@sudurland.is.
Verðlaunin verða nú í ár veitt í tólfta sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs. Jafnframt fylgir verðlaununum formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tenglsum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands n.k. janúar.
Deila frétt
Fleiri fréttir

9. september 2026
Mesta fjölgun ríkisstarfa á Suðurlandi – samt með lægsta hlutfall stöðugilda
Lesa nánar

8. september 2026
Ný tækifæri fyrir sunnlenska frumkvöðla: Eignarhaldsfélag Suðurlands gengur í IceBAN
Lesa nánar

7. september 2026
SASS hafnar skattahækkun á baðlón: Ógnar 400 heilsársstörfum á Suðurlandi
Lesa nánar

4. september 2026
Opnað fyrir 50 milljóna króna úthlutun til vinnustaðaklasa
Lesa nánar