Til baka í yfirlit
22. ágúst 2023
Óskað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi 2023

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til samfélags- og hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi. Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem SASS mun veita formlega á ársþingi sínu í október 2023.
Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi, en mikil gróska hefur verið á þeim vettvangi undafarin ár.
Verðlaunin má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun, söfnum, hópi og/eða verkefni. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning á sviði menningar en menning er víða hornsteinn hvers samfélags og skiptir íbúa og gesti á Suðurlandi miklu máli.
Í rökstuðningi tilnefningarinnar skal hafa eitthvað af eftirfarandi atriðum til hliðsjónar:
- Hefur tilnefndur gefið jákvæða mynd af Suðurlandi og/eða ákvæðnu svæði á Suðurlandi?
- Hefur tilnefndur stuðlað að þátttöku íbúa og/eða gesta á menningarviðburðum á Suðurlandi?
- Hefur tilnefndur vakið sérstaka athygli á menningararfi Sunnlendinga?
- Hefur tilnefndur aukið samstöðu og virkni í tengslum við menningu meðal íbúa?
- Hefur tilnefndur skapað nýtt menningartengt verkefni sem vakið hefur eftirtekt?
- Hefur tilnefndur með einhverjum hætti stuðlað að aukinni menningu hjá börnum og ungmennum?
Veitt verður viðurkenning sem og peningaverðlaun sem nýta á til áframhaldandi menningarstarfs á Suðurlandi
Tilnefningar skal senda á netfangið menningarverdlaun@sass.is eigi síðar en mánudaginn 9. október nk.
Fleiri fréttir

20. ágúst 2026
Beint frá býli dagurinn haldinn hátíðlegur sunnudaginn 23. ágúst
Lesa nánar

19. ágúst 2026
Opnað fyrir styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna
Lesa nánar

17. ágúst 2026
Ríkisstjórnin á Höfn: Árangur í innviðamálum en kallað á frekari aðgerðir
Lesa nánar

29. júlí 2026
Eyjagöng: Hafbotnsmælingum lokið og borun gengur vel
Lesa nánar