Til baka í yfirlit
2. febrúar 2022
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbygginarsjóð Suðurlands 2022, fyrri úthlutun

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, um er að ræða vorúthlutun 2022. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði
atvinnuþróunar og nýsköpunar, og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir, eru líklegri til að hljóta styrki.
Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun. Ráðgjafar SASS eru staðsettir á sex stöðum á Suðurlandi og aðstoða við mótun verkefna og veita ráðgjöf. Við bendum einnig
á ráðgjafasíðu SASS, þar sem er að finna leiðbeiningar um umsóknarskrif.
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einka aðgangi verkefnastjóra. Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, eða bóka tíma í ráðgjöf hér
Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 1. mars 2022.


Fleiri fréttir

24. nóvember 2026
Starfsfólk SASS sótti nýja þekkingu á norræna byggðaþróunarráðstefnu í Árósum
Lesa nánar

19. nóvember 2026
Hulduheimar fyrstir leikskóla í Árborg til að hljóta ART-vottun
Lesa nánar

18. nóvember 2026
„Hættum að tala og byrjum að gera“ – Náttúruverndarstofnun blómstrar á landsbyggðinni
Lesa nánar

16. nóvember 2026
Söguslóðir Suðurlands mótast: Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Lesa nánar